Verðlaunamyndin Anorgasmia frumsýnd í Bíó Paradís

Kvikmyndin Anorgasmia verður frumsýnd í Bíó Paradís fimmtudaginn 10. september eftir að hafa farið á 15 alþjóðlegar kvikmyndahátíðir í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu og hlotið fern verðlaun. Myndin var heimsfrumsýnd í keppnisflokki kvikmyndahátíðarinnar í Varsjá. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bíó Paradís.

Anorgasmia er önnur kvikmynd Jóns Gústafssonar í fullri lengd. Mathilde Warnier og Edward Hayter fara með aðalhlutverkin en meðal annarra leikara eru Tómas Lemarquis, Guðmundur Þorvaldsson, Þóra Karítas Árnadóttir, Gunnar Jónsson og Telma Huld Jóhannesdóttir. Michael Brook semur tónlistina.

Myndin segir frá 2 ókunnugum ferðalöngum sem verða strandaglópar á Íslandi þegar eldgos stöðvar allt flug. Þau kynnast og leggja af stað í átt að gosstöðvunum en ferðalagið tekur óvænta stefnu og breytir lífi þeirra.

Frumsýningin verður kl. 19 á fimmtudag og Anorgasmia verður áfram til sýninga næstu daga.

Prjónarnir teknir með í bíó

Óvenjuleg kvikmyndasýning verður síðan í Bíó Paradís á föstudagskvöld þegar rómantíska kvikmyndin The Notebook verður sýnd í svokölluðu prjónabíói.

Ljós verða höfð kveikt í salnum svo áhorfendur geti prjónað meðan þeir fylgjast með myndinni. Sýningin hefst kl. 21 og verður myndin sýnd með íslenskum texta.

Englar alheimsins aftur á hvíta tjaldið

Ein þekktasta íslenska kvikmynd síðari áratuga, Englar alheimsins, snýr aftur á hvíta tjaldið á laugardag.

Sýningin er hluti af samstarfi Bíó Paradísar og Kvikmyndasafns Íslands þar sem íslenskar kvikmyndir sem fjallað var um í Stjörnubíói á RÚV verða sýndar. Englar alheimsins verður sýnd kl. 19.

Bíótekið snýr aftur á sunnudag

Helginni lýkur síðan með endurkomu Bíóteksins sunnudaginn 13. september. Þar verða 3 kvikmyndir sýndar í samstarfi Bíó Paradísar og Kvikmyndasafns Íslands auk þess sem boðið verður upp á fræðslu, viðburði og spjall tengt myndunum.

Barbarella verður sýnd kl. 15, Bíódagar kl. 17 og Nineteen Eighty-Four kl. 19:30.

Smelltu hér til þess að skoða dagskrána.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila