Verðtrygging ekki séríslenskt fyrirbæri í raun

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Ólafsson, hagfræðing í síðdegisútvarpinu um húsnæðismál, félagslegar lausnir á húsnæðisvanda og verðtryggingu. Guðmundur sagði að bæði samvinnufélög á húsnæðismarkaði og verðtrygging hefðu gegnt mikilvægu hlutverki hér á landi og hafnaði því að verðtrygging væri séríslenskt fyrirbæri sem ekki þekktist annars staðar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Húsnæðissamvinnufélög hafi skipt miklu máli

Guðmundur rifjaði upp að áður fyrr hafi húsnæðissamvinnufélög átt stóran þátt í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á Íslandi. Hann nefnir sem dæmi að faðir sinn hafi verið í húsnæðissamvinnufélagi starfsmanna Mjólkursamsölunnar og þannig eignast íbúð. Síðar hafi hann fengið aðra íbúð í gegnum sama fyrirkomulag.

Aðspurður um stöðuna í dag segir Guðmundur að slíkar félagslegar lausnir hafi víða erlendis verið mikilvægur þáttur í húsnæðisuppbyggingu. Hann telur hins vegar að þessi nálgun hafi smám saman vikið fyrir meiri áherslu á einkaframtak hér á landi. Þótt einkaframtak sé nauðsynlegt telur hann að samtakamátturinn geti einnig skilað góðum árangri við uppbyggingu húsnæðis.

Verðtryggingu hluti af vaxtakerfum

Rætt var um að verðtrygging væri ekki viðhöfð í mörgum Evrópulöndum. Guðmundur sagði að verðbætur séu í raun reiknaðar inn í vexti víðast hvar, þótt fyrirkomulagið sé ekki kallað verðtrygging.

Að hans mati sé því rangt að halda því fram að verðtrygging sé séríslenskt fyrirbæri. Munurinn felist fremur í því hvernig verðbótaþátturinn sé útfærður og birtist í lánakerfinu en ekki í því hvort tekið sé tillit til verðbólgu.

Húsnæðisverð hafi skipt sköpum

Aðspurður um áhrif verðtryggðra lána segir Guðmundur að á Íslandi hafi húsnæðisverð um langt árabil hækkað meira en vísitala neysluverðs. Því hafi margir sem keyptu húsnæði með verðtryggðum lánum jafnframt séð verðmæti eigna sinna aukast hraðar en skuldirnar.

Hann tekur þó fram að slíkt sé ekki náttúrulögmál og þróunin geti breyst ef verðlag þróist með öðrum hætti í framtíðinni. Að hans mati þarf því ávallt að skoða verðtryggingu í samhengi við þróun húsnæðisverðs og verðbólgu en ekki sem einangrað fyrirbæri.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila