Víða vonskuveður á landinu

vondavedridMikið hvassviðri gengur nú yfir landið með úrkomu en hvassviðrið er til komið vegna hitaskila en næstu daga koma lægðir á færibandi og því má búast við leiðindaveðri fram til áramóta. Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast vegna veðursins en þó hefur ekki mikið tjón hlotist af veðrinu enn sem komið er. Rétt er að fólk hugi að lausum munum utandyra sem kunna að fjúka og gæta þess að sópa frá niðurföllum svo regnvatn eigi greiða leið að þeim.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila