Viðbúnaður aukinn víða um land vegna almyrkvans í dag

Mikill viðbúnaður verður hjá lögreglu, björgunarsveitum, heilbrigðisstofnunum og öðrum viðbragðsaðilum vegna almyrkvans á sólu í dag. Landhelgisgæslan verður einnig með þyrlu, varðskip og aðgerðarbáta í viðbragðsstöðu.

Almyrkvinn verður síðdegis og fer yfir Vestfirði, Vesturland og Reykjanesskaga en deildarmyrkvi verður um allt land. Búist er við miklum fjölda fólks á almyrkvaslóð og hefur umfangsmikil samhæfing farið fram milli stjórnvalda, sveitarfélaga, viðbragðsaðila og ferðaþjónustunnar.

Lögregla og björgunarsveitir auka viðbúnað

Lögregla og björgunarsveitir hafa skipulagt aukinn viðbúnað vegna almyrkvans. Heilbrigðisstofnanir og Vegagerðin hafa einnig undirbúið sig fyrir aukið álag.

Sérstaklega er horft til Vestfjarða þar sem veðurspár gera ráð fyrir mestum líkum á hagstæðum aðstæðum til að sjá almyrkvann. Gangi spár eftir gæti mikill fjöldi fólks lagt leið sína þangað, einkum á sunnanverða Vestfirði.

Fjarskiptaþjónusta við Látrabjarg hefur verið efld og undirbúningi Neyðarlínunnar og fjarskiptafyrirtækja er lokið.

Þyrla, varðskip og aðgerðarbátar til taks

Landhelgisgæslan verður með umfangsmikinn viðbúnað á almyrkvaslóð. Þyrla Gæslunnar verður í viðbragðsstöðu á Snæfellsnesi og varðskipið Freyja verður staðsett undan sunnanverðum Vestfjörðum.

Aðgerðarbátur með áhöfn verður jafnframt staðsettur á Rifi eða Arnarstapa og annar aðgerðarbátur verður tiltækur í Helguvík á Suðurnesjum.

Umferðastýring og aðgangstakmarkanir

Stjórnvöld vara við auknu umferðarálagi og hvetja fólk til að leggja tímanlega af stað og gera ráð fyrir lengri ferðatíma.

Tímabundnar aðgangstakmarkanir og umferðastýring verða sums staðar á Vestfjörðum. Á Látrabjargi og öðrum afskekktum stöðum er takmarkað rými, fá bílastæði og minni þjónusta en í þéttbýli. Hleðslustöðvar fyrir rafbíla eru einnig takmarkaðar á slíkum svæðum.

Sveitarfélög hafa komið upp sérstökum áhorfs- og söfnunarsvæðum á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi og víðar þar sem hægt verður að fylgjast með almyrkvanum.

Fólk hvatt til að undirbúa sig

Stjórnvöld hvetja fólk til að fylgjast með nýjustu upplýsingum um veður, umferð og aðgengi áður en lagt er af stað.

Þá er brýnt að nota viðurkennd sólmyrkvagleraugu þegar horft er til sólar og sérstaklega þarf að gæta að börnum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila