Viðskiptaráð vill afnema rammaáætlun og stytta leyfisferli virkjana

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ragnar Sigurð Kristjánsson, hagfræðing Viðskiptaráðs, í síðdegisútvarpinu í dag, um nýjar tillögur ráðsins um breytingar á regluverki orkuframkvæmda. Viðskiptaráð vill afnema lögin um rammaáætlun og fella niður 7 af 12 skrefum sem nú þarf að fara í gegnum við undirbúning virkjana. Ragnar sagði núverandi fyrirkomulag hafa valdið langvarandi töfum á orkuuppbyggingu og almenn leyfisveitingalög, umhverfismat og náttúruverndarlög ættu að gilda um orkuframkvæmdir með sama hætti og aðra atvinnustarfsemi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Kraftur í kortunum – leiðin að tvöföldun raforkuframleiðslu

Viðskiptaráð kynnti nýja úttekt undir heitinu „Kraftur í kortunum – leiðin að tvöföldun raforkuframleiðslu“ þar sem lagt er til að núverandi lög um verndar- og orkunýtingaráætlun verði afnumin. Ragnar útskýrði að undirbúningur virkjana fæli nú í sér 12 skref. 7 þeirra tengdust rammaáætlun, 2 umhverfismati og 3 skipulags- og leyfisveitingaferli.

Samkvæmt tillögunum yrðu fyrstu 7 skrefin felld niður. Virkjanaframkvæmdir færu þess í stað beint í hefðbundið umhverfismat, skipulagsferli og almenna leyfisveitingu. Þannig yrði ekki lengur nauðsynlegt að leggja hvern virkjunarkost fyrir verkefnisstjórn rammaáætlunar og bíða eftir flokkun hans og samþykki Alþingis áður en hefðbundið leyfisferli gæti hafist.

Ragnar sagði þetta mikilvægt skref til að draga úr pólitískri aðkomu að einstökum orkuframkvæmdum og tryggja að sömu meginreglur giltu um orkuvinnslu og aðra atvinnustarfsemi.

Hvammsvirkjun verði 32 ár í undirbúningi

Ragnar rakti hvernig núverandi fyrirkomulag hefði tafið uppbyggingu raforkuframleiðslu á Íslandi. Frá því að lögin um rammaáætlun voru sett árið 2011 hefðu aðeins þrjár nýjar virkjanir verið teknar í notkun. Framkvæmdir við eina þeirra, Búðarhálsvirkjun, hefðu þegar verið hafnar þegar lögin tóku gildi. Hinar tvær væru Þeistareykjavirkjun og Vaðölduver, vindorkuver sem tekið var í notkun í haust.

Hann benti á að raforkuframleiðsla landsins hefði nánast staðið í stað frá árinu 2017. Samkvæmt upplýsingum Landsvirkjunar tæki ferli rammaáætlunar að lágmarki 12 ár við bestu aðstæður.

Hvammsvirkjum gæti tekið 32 ár

Ragnar tók Hvammsvirkjun sem dæmi. Hún hefði fyrst komið til umfjöllunar árið 1999 og samkvæmt þeirri framvindu sem nú væri gert ráð fyrir myndu líða 32 ár frá því að verkefnið kom fyrst inn í ferlið þar til virkjunin yrði tekin í notkun. Hann nefndi að kæruheimildir, tafir á afgreiðslu og skortur á bindandi tímafrestum hefðu áhrif á hversu lengi framkvæmdir drægjust.

Orkuframkvæmdir lúti sömu reglum og önnur atvinnustarfsemi

Arnþrúður spurði hvort reglurnar sem væru í gildi væru íslenskar eðra evrópskar. Ragnar svaraði því til að rammaáætlun væri að mestu séríslenskt fyrirkomulag og sambærilegt ferli þekktist ekki annars staðar á Vesturlöndum.

Hann tók dæmi um að sá sem vildi reisa jarðvarmavirkjun þyrfti fyrst að fá virkjunarkostinn metinn innan rammaáætlunar og samþykktan á Alþingi áður en venjulegt leyfisferli hæfist. Vildi sami aðili hins vegar reisa álver á sama landsvæði þyrfti framkvæmdin ekki að fara í gegnum þetta sérstaka ferli, heldur einungis hefðbundið umhverfismat, skipulagsferli og leyfisveitingar.

Viðskiptaráð vill afnema þennan mun og tryggja að orkuframkvæmdir njóti jafnræðis gagnvart öðrum atvinnugreinum. Ragnar undirstrikaði að breytingarnar fælu ekki í sér afnám umhverfiskrafna. Framkvæmdir yrðu áfram háðar lögum um náttúruvernd, umhverfismati og skipulagsákvörðunum sveitarfélaga.

Stærstu virkjanirnar þurfi áfram samþykki Alþingis

Arnþrúður spurði hvernig tryggja ætti heildstæða sýn á náttúruvernd og orkunýtingu ef rammaáætlun yrði afnumin. Ragnar sagði friðlýst svæði og þjóðgarða áfram njóta verndar samkvæmt náttúruverndarlögum. Ekki yrði heimilt að ráðast í framkvæmdir sem brytu gegn þeim lögum.

Ákvörðun um hagkvæmni einstakra virkjana yrði hins vegar fyrst og fremst í höndum framkvæmdaraðilanna sjálfra, líkt og við aðrar stórframkvæmdir á Íslandi. Viðskiptaráð leggur jafnframt til að umfangsmestu virkjanaframkvæmdirnar verði áfram háðar samþykki Alþingis.

Þar yrði horft til tveggja skilyrða: að uppsett afl færi yfir tiltekin mörk og að framkvæmdin hefði verulega þýðingu fyrir þjóðarhag ásamt óafturkræfum áhrifum á náttúruna. Ragnar nefndi Kárahnjúkavirkjun sem dæmi um framkvæmd sem myndi falla undir slíkt fyrirkomulag.

Tvöfalda þurfi raforkuframleiðslu fyrir árið 2040

Viðskiptaráð tengir breytingartillögurnar við þörfina fyrir aukna orkuöflun á næstu árum. Ragnar vísaði til grænbókar stjórnvalda þar sem fram kæmi að tvöfalda þyrfti raforkuframleiðslu fyrir árið 2040 til að mæta fullum orkuskiptum og aukinni eftirspurn stórnotenda.

Núverandi leyfisferli væri að hans mati helsti flöskuhálsinn í þeirri uppbyggingu. Hann benti einnig á að virkjunarkostir gætu verið settir í biðflokk rammaáætlunar um óákveðinn tíma á meðan frekari gagna væri aflað. Þótt bindandi afgreiðslufrestir gætu bætt stöðuna myndu þeir ekki leysa þann grundvallarvanda að framkvæmdir þyrftu fyrst að fá pólitíska afgreiðslu áður en almenn leyfisveiting hæfist.

Þegar Arnþrúður spurði hvaða eina breytingu Alþingi ætti að ráðast fyrst í, var svar Ragnars afdráttarlaust:

„Að afnema lögin um rammaáætlun og setja nýjan lagaramma sem tryggir þessa almennu leið.“

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila