
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ólaf Ragnar Grímsson fyrrverandi forseta Íslands í kjölfar þess að samtökin Áfram Ísland voru stofnuð þann 6. júlí s.l., á fjölmennum fundi í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll. Áfram Ísland eru regnhlífasamtök þeirra sem vilja segja nei við inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Viðtalið hefur vakið mikla athygli og fjölmargir óskað eftir endurflutningi og jafnframt leitað að því á netinu. Viljum við vekja athygli fólks á að viðtalið er aðgengilegt á fréttasíðu okkar, utvarpsaga.is og er að finna við allar fréttir sem birtast um Ólaf Ragnar Grímsson. Bendum við fólki á opna link sem er fyrir neðan viðtölin. Jafnframt er linkur á viðtal Arnþrúðar við Ólaf Ragnar hér fyrir neðan, á þessari síðu.
Í viðtalinu ræðir Ólafur Ragnar meðal annars um tilefni stofnunar Áfram Íslands, fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst n.k. Hann ræðir um helstu breytingar á stjórnskipun Íslands og fullveldi landsins og þau stjórnskipulegu álitaefni sem hann telur að því tengist. Hann ræðir um þau áhrif sem Ísland fengi með “sæti við borðið” eins og það er gjarnan kallað. Jafnframt um stöðu landsins gagnvart Evrópusambandinu, sjávarútvegsmáin, evruna, vaxtamálin og meintar undanþágur frá gildandi lögum Evrópusambandsins og margt fleira.
Hlusta má á viðtalið hér að neðan með því að smella á spilunarhnappinn
