
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Vigdísi Hauksdóttur, fyrrverandi borgarfulltrúa Miðflokksins, fyrrverandi alþingismann og lögfræðing í síðdegisútvarpinu, um lóðaleigusamninga Reykjavíkurborgar við olíufélögin, svokallað bensínstöðvamál og þá leynd sem ríkt hafi yfir samningunum innan borgarkerfisins. Vigdís sagði olíufélögin hafa fengið afhentar verðmætar lóðir án þess að greiða fyrir þær og taldi ólíklegt að nýr meirihluti í Reykjavík myndi hrófla við þeim samningum eða rannsaka málið frekar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Upplýsingar í leyniherbergi í ráðhúsinu
Í viðtalinu rifjaði Vigdís upp að þegar bensínstöðvamálið hefði komið upp á kjörtímabilinu 2018–2022 hefði aðgangur borgarfulltrúa að gögnum verið mjög takmarkaður. Hún sagði sérstakt „leyniherbergi“ hafa verið sett upp í ráðhúsinu þar sem borgarfulltrúum var sýndur hluti gagna án þess að þeir fengju afrit eða fullan aðgang að upplýsingum. Vigdís sagði að mikilvægustu upplýsingarnar hefðu í raun ekki verið aðgengilegar inni í þessu fyrirkomulagi og hún hefði sjálf þurft að sækja lóðaleigusamninga til sýslumanns til að geta farið yfir þá í heild.
Hún sagði að sambærileg vinnubrögð sæjust nú aftur í umræðu um skjöl tengd Evrópumálum á Alþingi og taldi að stjórnvöld beittu ítrekað leynd þegar um stór og umdeild mál væri að ræða.
Olíufélögin fengu lóðirnar án greiðslu á kostnað skattgreiðenda í Reykjavík
Vigdís sagði að samkvæmt samningunum hefðu Olíufélögin fengið verðmætar lóðir afhentar þegar eldri lóðaleigusamningar runnu út. Reykjavíkurborg hefði jafnframt tekið á sig kostnað við að breyta bensínstöðvalóðum í íbúða- og atvinnusvæði. Félögin hefðu ekki þurft að greiða fyrir nýju lóðirnar og hefðu að auki fengið aðrar lóðir í staðinn, meðal annars á Kjalarnesi og við Granda. Að hennar mati hefði þetta verið gert á kostnað skattgreiðenda í Reykjavík.
Vigdís sagði að lóðirnar gengju nú kaupum og sölum milli fjárfestingafélaga, verktaka og annarra aðila fyrir milljarða króna þrátt fyrir að olíufélögin hefðu ekki þurft að greiða fyrir upphafleg réttindi sín.
Vísaði til dóms Hæstaréttar
Í umræðunni sagði Vigdís að hún hefði ítrekað bent á dóm Hæstaréttar frá 2003 sem varðaði lóðamál í Hornafirði. Þar hefði verið staðfest að sveitarfélög hefðu fullan rétt til að ráða yfir landi sínu og að Olíufélag hefði þurft að fjarlægja mannvirki sín og skila lóð í upprunalegu horfi þegar lóðaleigusamningur rann út. Reykjavíkurborg hafi hins vegar farið þveröfuga leið í samningunum undir stjórn Dags B. Eggertssonar og Samfylkingarinnar. Að hennar mati hefði borgin gefið frá sér verðmæti sem hefðu átt að renna til borgarbúa.
Vigdís sagði jafnframt að aðeins fyrsti hluti þessa ferlis hefði komið fram opinberlega og fleiri sambærileg verkefni tengd bensínstöðvalóðum væru enn fram undan, meðal annars á svæðum þar sem fyrirhuguð Borgarlína ætti að fara um.
Telur nýjan meirihluta ekki endurskoða málið
Arnþrúður spurði hvort nýr meirihluti myndi fara ofan í málið eða rannsaka ákvarðanir síðustu ára. Vigdís sagðist ekki eiga von á því.
Hún benti á að Viðreisn hefði setið í meirihluta þegar samningarnir voru samþykktir og að Framsókn hefði einnig starfað með fyrri meirihlutum. Þá taldi hún ekki líklegt að Sjálfstæðisflokkurinn myndi ráðast í endurskoðun málsins. Málið endurspegli alvarleg vandamál í stjórnsýslu Reykjavíkurborgar þar sem stórar ákvarðanir væru teknar án fullrar upplýsingagjafar og án þess að pólitísk ábyrgð væri skýr.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
