Vildi slíta ríkisstjórnarsamstarfinu vegna hvalveiðibanns Svandísar

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jón Gunnarsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra í síðdegisútvarpinu um ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur, þáverandi matvælaráðherra, að stöðva hvalveiðar sumarið 2023. Jón sagði ákvörðunina hafa verið ólögmæta, ráðherrann hefði brotið lög og málið þess eðlis að hann hefði viljað slíta ríkisstjórnarsamstarfinu vegna þess. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Grafalvarleg ákvörðun Svandísar

Aðspurður hvort honum hefði fundist ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur svo alvarleg að hún ætti að hafa pólitískar afleiðingar sagði Jón að svo hefði verið. Hann sagðist hafa talið að Svandís ætti að láta af embætti matvælaráðherra vegna ákvörðunarinnar.

Jón sagði jafnframt að hann hefði viljað ganga enn lengra og slíta ríkisstjórnarsamstarfinu vegna málsins. Hann hafi lýst þeirri skoðun opinberlega að ákvörðunin væri svo alvarleg að hún réttlætti slíkt skref. Að hans mati hefði ríkisstjórnin átt að bregðast mun harðar við og ekki láta málið lognast útaf án pólitískra afleiðinga.

Segir ráðherrann hafa farið út fyrir valdheimildir sínar

Sagði Jón að Svandís hefði farið út fyrir þær valdheimildir sem embættinu væru settar og gripið inn í lögmæta atvinnustarfsemi án fullnægjandi lagastoðar. Hann vísaði til þess að síðar hefði Umboðsmaður Alþingis komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðunin hefði verið ólögmæt.

Jón sagði ekki útilokað að málið ætti enn eftir að fá frekari umfjöllun fyrir dómstólum en taldi að meginatriðið væri að ráðherra hefði tekið ákvörðun sem hefði ekki staðist lög. Að hans mati væri það meðal alvarlegustu aðgerða sem stjórnvöld gætu gripið til gagnvart atvinnugrein sem starfaði samkvæmt gildandi leyfum.

Segir bannið hafa haft víðtækar afleiðingar

Þegar Arnþrúður spurði hvaða áhrif ákvörðunin hefði haft sagði Jón að hvalveiðifyrirtækin hefðu verið tilbúin að hefja vertíð þegar bannið var sett á. Skip hefðu verið ferðbúin, starfsfólk ráðið og umfangsmikill undirbúningur að baki.

Hann sagði ákvörðunina hafa haft veruleg áhrif á afkomu fjölmargra. Þar á meðal nefndi hann fólk sem hafði ráðið sig til sumarstarfa við hvalveiðar, námsmenn sem treystu á tekjurnar til að fjármagna nám sitt og starfsfólk sem vann við vinnslu og annan rekstur fyrirtækjanna. Að hans mati hefði með einni stjórnvaldsákvörðun verið gripið með mjög íþyngjandi hætti inn í lífsafkomu fjölda fólks.

Segir málið hafa skapað hættulegt fordæmi

Jón sagði að málið snerist um meira en hvalveiðar. Að hans mati fælust í því alvarleg skilaboð til samfélagsins ef ráðherra gæti farið út fyrir valdheimildir sínar eða brotið lög án þess að það hefði pólitískar afleiðingar.

Hann sagði jafnframt að íslensk stjórnvöld yrðu að standa vörð um lögmæta atvinnustarfsemi og gæta þess að pólitískur þrýstingur eða herferðir hagsmunahópa leiddu ekki til ákvarðana sem skorti lagastoð. Að hans mati væri mikilvægt að sambærilegt fordæmi yrði ekki sett á ný.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila