Vilja að öldungameistari Íslands fái sæti í landsliðsflokki

Kristján Örn Elíasson ræddi við Þorstein Þorsteinsson, FIDE meistara í þættinum, Við skákborðið um stöðu öldungaskákar á Íslandi og tillögur sem lagðar verða fram á aðalfundi Skáksambands Íslands. Þar verður meðal annars lagt til að Íslandsmeistari öldunga fái sjálfkrafa sæti í landsliðsflokki Íslandsmeistaramótsins, líkt og Íslandsmeistarar kvenna og unglinga. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Gagnrýna mismunun á grundvelli aldurs

Þorsteinn sagði óeðlilegt að öldungaflokkurinn væri eini Íslandsmeistaraflokkurinn sem nyti ekki slíks þátttökuréttar. Hann sagði það fela í sér mismunun á grundvelli aldurs, sérstaklega þar sem margir sterkustu íslensku skákmannanna væru nú komnir yfir fimmtugt. Í greinargerð með tillögunni kemur fram að öldungameistarar Íslands séu oft með hærri alþjóðleg skákstig en aðrir keppendur sem nú þegar fá sjálfkrafa sæti í landsliðsflokknum. Þá var bent á að íslenskir öldungaskákmenn hefðu nýlega sýnt styrk sinn með bronsverðlaunum á heimsmeistaramóti öldungasveita í Albaníu.

Þorsteinn sagði að eldri kynslóðir íslenskra skákmanna væru nú meðal þeirra sterkustu sem Ísland ætti og að skákhreyfingin þyrfti að bregðast við þeirri þróun með markvissari stuðningi.

Deilt um fyrirkomulag Íslandsmóts öldunga

Í viðtalinu var einnig rætt um Íslandsmót öldunga sem haldið verður á Akureyri. Þar hefur verið gagnrýnt að keppt verði í atskák í stað hefðbundinnar kappskákar. Þorsteinn sagði ákvörðunina fyrst og fremst hafa ráðist af praktískum ástæðum þar sem erfitt væri fyrir marga keppendur að verja heilli viku norðan heiða vegna kappskákar. Með atskákarfyrirkomulagi væri hægt að ljúka mótinu á einni helgi og draga úr ferðakostnaði og gistikostnaði þátttakenda.

Hann sagði þó ljóst að Skáksamband Íslands þyrfti að móta skýrari stefnu um öldungaskák og efla umgjörð hennar til framtíðar.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila