
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Sigfús Aðalsteinsson, oddvita Okkar borgar og Baldur Borgþórsson, sem skipar 2.sæti lista Okkar borgar í síðdegisútvarpinu um Borgarlínuverkefnið, samgöngustefnu Reykjavíkurborgar og stöðu einkabílsins í borginni. Þeir sögðu Borgarlínuna vera eitt stærsta deilumál borgarstjórnarkosninganna og töldu verkefnið byggjast á stefnu sem miðaði að því að þrengja að bílaumferð í Reykjavík. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Segja Borgarlínu byggða á andstöðu við einkabílinn
Baldur Borgþórsson sagði núverandi samgöngustefnu Reykjavíkurborgar hafa það yfirlýsta markmið að draga úr notkun einkabílsins. Hann sagði skipulagsákvarðanir meirihlutans undanfarin ár hafa miðast við að neyða íbúa yfir í almenningssamgöngur með fækkun bílastæða, aukinni þéttingu byggðar og breytingum á gatnakerfi borgarinnar.
Hann sagði sérstaklega að íbúar í úthverfum eins og Grafarvogi, Breiðholti, Grafarholti og Úlfarsárdal fyndu fyrir þessari stefnu þar sem daglegt líf fjölskyldna byggðist enn að stórum hluta á notkun einkabílsins. Að hans mati væri verið að skipuleggja borgina út frá hugmyndafræði fremur en raunverulegum samgönguþörfum borgarbúa.
Sigfús Aðalsteinsson sagði Okkar borg, alfarið hafna þeirri þróun að gera fólki erfiðara fyrir að nota einkabílinn sinn. Hann sagði borgaryfirvöld eiga að tryggja greiðar samgöngur í stað þess að setja hömlur á akstur og bílastæði.
Gagnrýna fækkun bílastæða í nýjum hverfum
Í viðtalinu gagnrýndu þeir einnig ný skipulagsviðmið í Reykjavík þar sem gert væri ráð fyrir færri bílastæðum við fjölbýlishús. Baldur sagði að í sumum verkefnum væri miðað við 1 eða jafnvel minna en 1 bílastæði á hverja íbúð.
Hann sagði Okkar borg vilja að 2 bílastæði fylgdu hverri íbúð og að minnsta kosti annað þeirra væri í bílageymslu. Að hans mati samræmdist það betur þörfum fjölskyldna og raunverulegri bílaeign í borginni.
Þeir gagnrýndu jafnframt hugmyndir um stór sameiginleg bílastæðahús í nýjum hverfum. Baldur sagði kostnaðarmun á slíkum húsum og hefðbundnum bílastæðakjöllurum ekki nægilega mikinn til að réttlæta breytingarnar. Hann sagði slíkar lausnir fyrst og fremst til komnar vegna andstöðu við einkabílinn.
Borgarlínan tengist þéttingarstefnu borgarinnar
Baldur og Sigfús sögðu Borgarlínuna vera nátengda þéttingarstefnu Reykjavíkurborgar. Þeir töldu að markmiðið væri að byggja mjög þétt hverfi í kringum samgönguása þar sem færri bílastæði yrðu í boði og íbúar ættu frekar að treysta á almenningssamgöngur.
Þeir sögðu slíka þróun ekki samræmast vilja margra borgarbúa sem vildu áfram geta ferðast frjálst um borgina á eigin bílum. Að þeirra mati ætti Reykjavík að þróast sem borg þar sem fólk hefði raunverulegt val um ferðamáta en væri ekki neytt í ákveðnar samgöngulausnir með skipulagsákvörðunum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
