
Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar frumvarpsdrög um heildarendurskoðun laga um tæknifrjóvgun. Meðal helstu breytinga er tillaga um að kynfrumur frá sama gjafa megi aðeins nota þannig að börn fæðist í að hámarki tveimur fjölskyldum. Þá er lagt til að endurskoða heimildir til nafnlausra kynfrumugjafa og skilyrði um hjúskap eða sambúð þeirra sem óska eftir tæknifrjóvgun.
Breytingunum er ætlað að auka öryggi og gæði tæknifrjóvgunarþjónustu, tryggja jafnrétti og styrkja rétt barna sem getin eru með gjafafrumum til að þekkja líffræðilegan uppruna sinn. Jafnframt er stefnt að einföldun regluverks um starfsemina.
Smæð þjóðarinnar kallar á takmarkanir
Í frumvarpsdrögunum er lögð áhersla á að takmarka notkun kynfrumna frá sama einstaklingi til að draga úr hættu á að börn sem getin eru með gjafafrumum séu of náskyld.
Vegna smæðar íslensku þjóðarinnar er lagt til að kynfrumur frá einum gjafa verði aðeins notaðar til að eignast börn í tveimur fjölskyldum að hámarki.
Með því er ætlunin að draga úr líkum á að einstaklingar sem eiga sameiginlegan líffræðilegan uppruna en þekkja ekki skyldleika sinn eignist síðar börn saman.
Endurskoða vilja nafnlausar kynfrumugjafir
Núgildandi lög heimila nafnlausar kynfrumugjafir en í frumvarpsdrögunum er lagt til að það fyrirkomulag verði endurskoðað.
Áhersla er lögð á rétt barna og fullorðinna sem getin eru með gjafafrumum til að fá upplýsingar um líffræðilegan uppruna sinn.
Í greinargerð með tillögunum er meðal annars bent á að sífellt fleiri erfðasjúkdómar verði þekktir og að upplýsingar um skyldleika og erfðafræðilegan uppruna geti skipt máli við greiningu þeirra.
Endurskoðunin tekur því bæði mið af réttindum einstaklinga til að þekkja uppruna sinn og mikilvægi slíkra upplýsinga fyrir heilbrigðisþjónustu.
Hjúskapur eða sambúð verði ekki endilega skilyrði
Einnig er lagt til að endurskoða ákvæði laganna um að einstaklingar þurfi að vera í hjúskap eða sambúð til að geta staðið sameiginlega að tæknifrjóvgun.
Breytingin er meðal annars rökstudd með vísan til jafnréttis og breyttrar samfélagsgerðar.
Markmiðið er að kanna hvort núverandi skilyrði séu enn réttlætanleg eða hvort rýmka eigi heimildir einstaklinga til að nýta sér tæknifrjóvgun án þess að hjúskapur eða sambúð sé forsenda þess.
Bann við gjöf fósturvísa til endurskoðunar
Frumvarpsdrögin taka einnig til gildandi banns við gjöf fósturvísa. Lagt er til að ákvæðið verði skoðað nánar í samráði við þá sem málið varðar.
Þá er fyrirhugað að endurskoða hvernig leyfi til tæknifrjóvgunarþjónustu eru veitt.
Samkvæmt núgildandi lögum er það heilbrigðisráðuneytið sem veitir heilbrigðisstofnunum leyfi til að framkvæma tæknifrjóvgun. Almennt er það hins vegar embætti landlæknis sem veitir leyfi til reksturs heilbrigðisþjónustu.
Til skoðunar er að samræma leyfisveitingar á þessu sviði almennum reglum um heilbrigðisþjónustu og einfalda þannig stjórnsýsluna.
Frumvarpsdrögin hafa nú verið birt til umsagnar og gefst hagsmunaaðilum og almenningi kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en endanlegt frumvarp verður lagt fram.
Smelltu hér til þess að skoða málið í samráðsgátt
