Viljum þingmenn sem ætla að gera eitthvað fyrir börnin

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við hjónin Lilju Katrínu Gunnarsdóttur, útvarpskonu á Bylgjunni og Guðmund R. Einarsson, í síðdegisútvarpinu um stöðu barna í vanda og bakstursmaraþon sem þau halda til styrktar minningarsjóðnum Erninum. Guðmundur sagði alla velkomna og sérstaklega alþingismenn ef þeir ætluðu raunverulega að beita sér fyrir börn og málefnum þeirra. Bakstursmaraþonið hefst á laugardaginn kl.12:00 og stendur í sólarhring, í sýningarsal HTH og Ormsson, Lágmúla 8. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Samfélagið tapar þegar börn fá ekki hjálp

Arnþrúður spurði hjónin hvort þau vildu ekki sérstaklega fá alþingismenn til að mæta á bakstursmaraþonið og leggja málefninu lið.

Guðmundur sagði tilgangslaust að fá stjórnmálamenn eingöngu til þess að þeir gætu sagt að þeir hefðu mætt. Þau vildu fá þingmenn sem ætluðu að gera eitthvað fyrir börn og beita sér fyrir úrbótum.

Hann sagði málið ekki aðeins snúast um börnin sjálf heldur samfélagið í heild. Samfélagið tapaði þegar hæfileikaríkur einstaklingur fengi ekki þá aðstoð sem hann þyrfti, næði ekki að blómstra og vandinn yrði sífellt stærri.

Miklu auðveldara væri að grípa inn í meðan einstaklingurinn væri enn barn en að reyna að laga afleiðingarnar árum síðar.

Aðeins einn flokkur kom síðast

Guðmundur sagði aðeins einn stjórnmálaflokk hafa komið til þeirra þegar þau stóðu fyrir sambærilegum viðburði síðast. Það hefði verið Sjálfstæðisflokkurinn. Honum hefði þótt gott að fulltrúar hans hefðu komið, hlustað á þau og rætt málefnið.

Það hefði vakið athygli hans að aðrir flokkar sem ræddu mikið opinberlega um málefni barna hefðu ekki komið til að kynna sér það sem fjölskyldan vildi vekja athygli á.

Lilja bætti við að dyrnar væru opnar og heitt á könnunni.

Þörf á meiri áherslu á forvarnir

Arnþrúður vakti máls á því hvort meiri vitund væri að skapast um alvarleika stöðunnar meðal barna og ungmenna. Hún sagði umræðuna sýna að börn gætu lent mjög ung í fíkniefnavanda og spurði hvort ekki þyrfti að endurskoða forgangsröðun samfélagsins.

Guðmundur bar í því samhengi saman fjármuni sem varið væri til annarra verkefna við fjármuni til forvarna fyrir börn. Hann sagði sér oft hafa fundist erfitt að sjá hversu miklum krafti væri hægt að beita þegar ákveðin mál kæmust í forgang á meðan fjölskyldur ættu erfitt með að fá aðstoð.

Guðmundur lagði áherslu á að horfa þyrfti á alla fjölskylduna þegar vandi kæmi upp. Ekki ætti að dæma foreldrana heldur hjálpa þeim og börnunum saman og sækja sérfræðiþekkingu þegar hennar væri þörf.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila