Vill endurskoða samgöngusáttmálann og hafnar vegtollum

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum í Síðdegisútvarpinu um Borgarlínuna, samgöngusáttmálann og fyrirhugaða vegtolla á höfuðborgarsvæðinu. Hildur sagði Sjálfstæðisflokkinn vilja endurskoða samgöngusáttmálann frá grunni, hafna vegtollum á stofnæðum Reykjavíkur og breyta framkvæmd Borgarlínu þannig að hún þrengi ekki að almennri bílaumferð. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Segir samgöngusáttmálann illa saminn fyrir Reykjavík

Hildur sagði 7 ár vera liðin frá undirritun samgöngusáttmálans, án þess að stórar samgönguframkvæmdir hefðu komist í framkvæmd í Reykjavík. Hún sagði sáttmálann hafa verið illa saminn fyrir hönd borgarinnar og gagnrýndi að mikilvæg verkefni hefðu tafist árum saman. Hún nefndi sérstaklega gatnamótin við Sprengisand, innleiðingu snjallra umferðarljósa og Miklubrautargöng sem dæmi um framkvæmdir sem þyrfti að flýta verulega. Samkvæmt núverandi áætlunum eigi Miklubrautargöng ekki að klárast fyrr en um eða eftir árið 2040.

Hildur sagði Sjálfstæðisflokkinn vilja endurraða forgangi verkefna innan sáttmálans og skoða hvort Reykjavíkurborg gæti sjálf ráðist hraðar í ákveðnar framkvæmdir.

Gagnrýnir vegtolla á Ártúnsbrekku og stofnbrautum í Reykjavík

Mesta gagnrýnin í viðtalinu laut að fyrirhuguðum vegtollum. Hildur sagði stór hluti fjármögnunar samgöngusáttmálans eiga að koma úr vösum borgarbúa með gjaldtöku á stofnæðum sem fólk keyrir daglega. Hún nefndi sérstaklega Ártúnsbrekku og aðrar helstu umferðaræðar höfuðborgarsvæðisins og sagði um ræða skattlagningu á almennri umferð. Samkvæmt áformunum eigi að innheimta rúmlega 140 milljarða króna með veggjöldum.

Vegtollar eru ” úthverfaskattar”

Hildur sagði þetta leggjast sérstaklega þungt á íbúa úthverfa sem þyrftu daglega að aka til vinnu, skóla og þjónustu. Hún lýsti þessu sem „úthverfaskatti“ og sagði óásættanlegt að íbúar höfuðborgarsvæðisins þyrftu sjálfir að standa undir samgöngubótum með þessum hætti.

Vill ekki þrengja Suðurlandsbraut og Gullinbrú fyrir Borgarlínu

Í viðtalinu sagði Hildur að Sjálfstæðisflokkurinn styddi bættar almenningssamgöngur en hafnaði þeirri hugmyndafræði að þrengja ætti að bílaumferð til að þrýsta fólki yfir í Borgarlínuna. Hún sagði ekki koma til greina að taka akreinar af Suðurlandsbraut eða Gullinbrú undir sérleiðir Borgarlínu. Þar sem ekki væri hægt að koma sérakreinum fyrir án þess að skerða umferð, ættu almenningsvagnar að aka í almennri umferð.

Hildur sagði einnig að hægt væri að þróa hagkvæmari útgáfu af Borgarlínu en nú væri fyrirhuguð. Hún vísaði þar til svokallaðs BRT-kerfis, Bus Rapid Transit og sagði sérfræðinga hafa bent á að hægt væri að ná sambærilegum árangri með einfaldari og ódýrari lausnum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila