Vill koma á lokuðu brottfararúrræði fyrir hælisleitendur

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Vilhjálm Árnason oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ og jafnframt þingmann flokksins í síðdegisútvarpinu um hælisleitendamál, öryggismál og mögulegt lokað brottfararúrræði fyrir hælisleitendur sem fá synjun um vernd. Þar kom fram að Vilhjálmur telur nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld komi á slíku úrræði til að hægt verði að framfylgja brottvísunum með skilvirkari hætti og ná betri tökum á málaflokknum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Lokað brottfararúrræði nauðsynlegt

Í viðtalinu sagði Vilhjálmur að Sjálfstæðismenn hefðu lengi talað fyrir því að komið yrði á lokuðu brottfararúrræði fyrir einstaklinga sem fengið hefðu synjun um alþjóðlega vernd og ættu að yfirgefa landið. Hann sagði slíkt úrræði þurfa að vera lokað og skýrt afmarkað þannig að stjórnvöld gætu tryggt að einstaklingar hyrfu ekki úr kerfinu á meðan unnið væri að brottvísun þeirra úr landi.

Vilhjálmur sagði jafnframt að ef stjórnvöld myndu ákveða að staðsetja slíkt úrræði á Suðurnesjum yrði að setja því skýrar skorður. Hann sagði úrræðið ekki mega vera staðsett inni í íbúðahverfum heldur sem næst flugvallarsvæðinu og fjarri almennri byggð. Að hans mati væri mikilvægt að tryggja að íbúar þyrftu ekki að búa við óöryggi eða hafa dagleg samskipti við lokað brottfararúrræði í sínu nærumhverfi.

Reykjanesbær hefur tekið við of mörgum hælisleitendum

Vilhjálmur sagði Reykjanesbæ hafa um langt skeið tekið við stórum hópi hælisleitenda samkvæmt samningum við ríkið og að sveitarfélagið hefði borið meiri byrðar en mörg önnur sveitarfélög landsins. Hann sagði að á tímabili hefðu um 1.200 til 1.300 hælisleitendur verið staðsettir á svæðinu en að þeim hefði nú fækkað niður í um 300. Þrátt fyrir fækkunina sagði hann að enn kæmu upp atvik sem hefðu áhrif á öryggistilfinningu íbúa, meðal annars í sundlaugum og almenningssamgöngum.

Í viðtalinu sagði hann að Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ hygðist ekki samþykkja nýja samninga við ríkið um frekari móttöku hælisleitenda á næsta kjörtímabili.

Gera þarf greinarmun á innflytjendum og hælisleitendum

Vilhjálmur lagði áherslu á að gera þyrfti greinarmun á hælisleitendum annars vegar og innflytjendum sem kæmu til landsins vegna atvinnu hins vegar. Hann sagði innflytjendur gegna mikilvægu hlutverki í atvinnulífi Suðurnesja og að Reykjanesbær hefði lengi verið fjölmenningarsamfélag þar sem fólk af erlendum uppruna hefði tekið virkan þátt í atvinnulífi og samfélagi.

Á sama tíma sagði hann mikilvægt að stjórnvöld settu skýr mörk í hælisleitendamálum og tryggðu að íslensk lög og reglur væru virt.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila