
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Albínu Thordarson, arkitekt og Sigurð Hólmar Jóhannesson, framkvæmdastjóra og fyrrverandi flugumferðarstjóra í þætti sínum um skipulagsmál, um áhrif fyrirhugaðra bygginga í Arnarlandi. Sigurður telur háar byggingar geta myndað iðuköst og vindhvirfla sem náð gætu yfir Hafnarfjarðarveg og inn á Arnarnes. Albína gagnrýndi jafnframt gögn um skuggavarp og hæðir húsa og sagði íbúahóp hafa óskað eftir frekari gögnum án þess að fá fullnægjandi svör. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Vindáhrif gætu náð inn á Arnarnes
Byggði Sigurður mat sitt meðal annars á reynslu sinni af veðri og vindum sem fyrrverandi flugumferðarstjóri. Ríkjandi austanátt myndi lenda á stærstu byggingunum vestast í Arnarlandi og loftið fara yfir þær og á milli þeirra.
Þegar loftstraumarnir mættust aftur handan húsanna gætu myndast iðuköst og vindhvirflar. Aðspurður taldi Sigurður áhrifin geta náð yfir Hafnarfjarðarveg og inn á Arnarnes.
Albína tengdi þetta við hæð og þéttleika fyrirhugaðrar byggðar. Mikill byggingarmassi á litlu svæði gæti breytt vindafari og því þyrfti að liggja skýrt fyrir hvaða áhrif húsin hefðu á nærliggjandi svæði.
Skuggavarpið byggði ekki á réttum hæðum
Albína vakti jafnframt athygli á skuggavarpsgögnum vegna Arnarlands. Arkitekt sem fór yfir skipulagsgögnin með íbúahópnum hefði bent á að hæðir bygginga væru ekki rétt settar inn í gögnin sem skuggavarpið byggði á. Það gæti gefið ranga mynd af skugga frá fyrirhuguðum húsum.
Sigurður sagði íbúahópinn ítrekað hafa óskað eftir frekari gögnum til að leggja sjálfstætt mat á áhrif uppbyggingarinnar án þess að fá þær upplýsingar sem hópurinn teldi nauðsynlegar.
Albína og Sigurður telja því að áhrif fyrirhugaðrar byggðar á vindafar og skuggavarp þurfi að liggja mun skýrar fyrir áður en endanlegar ákvarðanir verða teknar um uppbygginguna.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
