
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Kristinn Sigurjónsson, rafmagns- og efnaverkfræðing, í síðdegisútvarpinu, um áform um aukna vindorkuframleiðslu á Íslandi og hvernig vindorka vinnur með vatnsaflskerfinu. Kristinn sagði vindmyllur geta verið gagnlegar upp að ákveðnu marki en þegar búið væri að fullnýta möguleikann á að spara vatn í miðlunarlónum yrðu fleiri vindmyllur „bara vandræði, bara vesen“. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Vindorkan getur sparað vatnið í lónunum
Kristinn sagði vindmyllur hafa ákveðið gildi í íslenska raforkukerfinu vegna þess hversu vel þær gætu unnið með vatnsaflsvirkjunum.
Þegar vel blæs og vindmyllur framleiða mikið rafmagn er hægt að draga úr framleiðslu vatnsaflsvirkjana og geyma meira vatn í miðlunarlónum. Vatnið nýtist síðan þegar vindurinn minnkar. Þetta samspil geri vindorku áhugaverða á Íslandi en aðeins að ákveðnu marki.
Þegar vindmyllurnar séu orðnar það margar að framleiðsla þeirra hafi fullnýtt þann möguleika að spara miðlunarorku vatnsaflsvirkjananna sé komið að mörkum þess ávinnings.
Þarf bakhjarl þegar það er logn
Kristinn tók dæmi um 100 megavatta vindorkuver og miðaði við að það skilaði um 30 megavöttum að jafnaði.
Vindorkufyrirtæki gæti þá gert samning við kaupanda um 30 megavött en þyrfti jafnframt að tryggja afhendinguna þegar vindurinn dytti niður. Þá þyrfti fyrirtækið bakhjarl og þar kæmi Landsvirkjun inn. Vindorkuver utan Landsvirkjunar þyrfti að semja um það á hvaða verði það fengi rafmagn þegar logn væri.
Vandinn snerist einnig við þegar mikið blési. Ef 100 megavatta vindorkuver færi að framleiða af fullum krafti en kaupandinn þyrfti aðeins 30 megavött þyrfti að finna kaupanda að þeim 70 megavöttum sem væru umfram.
Landsvirkjun gæti því bæði þurft að tryggja varaorku þegar vindurinn brygðist og taka við umframorku þegar framleiðslan væri mikil.
Ekki gefið upp hvað rafmagnið kostar
Kristinn gagnrýndi jafnframt að ekki fengjust upplýsingar um raunverulegan framleiðslukostnað vindorkunnar. Hann sagði Landsvirkjun hafa rekið 2 vindmyllur með samanlagt tæplega 2 megavatta afl í um 12 ár og fyrirtækið væri með mjög öflugt bókhaldskerfi sem héldi nákvæmlega utan um reksturinn.
Þrátt fyrir það fengist ekki uppgefið hvað kílóvattstundin úr vindmyllunum kostaði.
Kristinn sagði þetta skipta máli þegar teknar væru ákvarðanir um stórfellda frekari uppbyggingu vindorku. Það væri ekki nóg að horfa aðeins á hversu mikla orku vindmyllurnar gætu framleitt heldur yrði einnig að reikna kostnaðinn, varaaflið og hvað gera ætti við umframorkuna.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
