Stjórnvöld í samvinnu við aðila á vinnumarkaði halda ráðstefnu á Grand Hótel 7. nóvember næstkomandi undir yfirskriftinni „The Working Conditions of Tomorrow.“
Í tilkynningu segir að á síðustu árum hafi íslenskur og norrænn vinnumarkaður breyst mikið og orðið flóknari. Víða hafi einnig verið mikil eftirspurn eftir vinnuafli sem hefur kallað á nýjar áskoranir á vinnumarkaði vegna mikillar fjölgunar erlendra starfsmanna, skammtímaráðninga og fjölbreyttra ráðningarforma. Jafnframt er aldursamsetning þjóðarinnar að breytast, ungum fækkar og eldri starfsmönnum fjölgar.
Þá segir í tilkynningunni að erlendir
starfsmenn séu síður upplýstir um íslenskt vinnuumhverfi og rétt sinn á vinnumarkaðnum. Slíkt auki líkur á félagslegum undirboðum, brotastarfsemi og mansali sem sé ógn við heilbrigðan vinnumarkað. Miklu máli skipti að litið sé til allra þessara þátta þegar skapa á gott vinnuumhverfi sem hæfir öllum og eykur velsæld.
Á ráðstefnunni munu fyrirlesarar fjalla um þessar áskoranir frá mismunandi sjónarhornum:
- breytingar á vinnumarkaði sem geta haft áhrif á vinnuumhverfi framtíðarinnar og starfsaðstæður
- hvernig hægt er að skapa góða vinnustaði sem stuðla að heilsu, öryggi og réttindum starfsfólks
- skipulegt samstarf þvert á landamæri og innanlands til þess að uppræta félagsleg undirboð og brotastarfsemi
Fyrirlesarar eru norrænir sérfræðingar í vinnuumhverfis-/vinnumarkaðsmálum og opinberum innkaupum sem og innlendir fyrirlesarar frá fyrirtækjum og stofnunum. Í lok
ráðstefnunnar verður pallborð með þátttöku félagsmálaráðherra, aðila vinnumarkaðarins og annarra sérfræðinga.
Markhópar ráðstefnunnar eru:
- Samtök atvinnurekenda og launafólks
- Fyrirtæki og stofnanir
- Forsvarsmenn opinberra innkaupa
- Stjórnmálamenn
- Sérfræðingar í vinnuvernd