Von á nýrri skáldsögu frá Yrsu Sigurðardóttur

Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Yrsu Sigurðardóttur, rithöfund og eiginmann hennar Ólaf Þór Þórhallsson, í þætti sínum á Útvarpi Sögu, um nýjustu skáldsögu Yrsu sem kemur út í nóvember. Bókin ber heitið, Mara og byggir á tveimur sögum sem fléttast saman. Annars vegar er fylgst með móður sem verður sannfærð um að sonur hennar hafi breyst eftir að hafa verið endurlífgaður og hins vegar kafara sem glímir við afleiðingar björgunaraðgerðar eftir flugslys. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Ótti móður verður kjarni sögunnar

Yrsa sagði að önnur meginsaga bókarinnar fjallaði um einstæða móður sem eignast son og lifir frá upphafi í stöðugum ótta við að eitthvað komi fyrir hann. Sá ótti magnast þegar drengurinn lendir í alvarlegu slysi og þarf að endurlífga hann. Þótt læknum takist að bjarga lífi hans verður móðirin smám saman sannfærð um að sá sem hafi snúið aftur sé ekki sami drengurinn og áður.

Hún lýsti því að sagan fjalli um hvernig slíkur grunur geti haft áhrif á hugsanir og líf foreldris og hvernig erfitt geti reynst að greina á milli raunveruleikans og þess sem óttinn kallar fram.

Martraðir fylgja kafara eftir flugslys

Hin sögulínan fylgir kafara sem tekur þátt í björgunaraðgerð eftir flugslys. Eftir verkefnið fer hann að þjást af endurteknum martröðum þar sem hann upplifir sig fastan inni í flakinu og sér fyrir sér fólkið sem þar var. Yrsa sagði þessar 2 frásagnir þróast samhliða og tengjast síðar þegar líður á söguna.

Að hennar sögn byggir spennan meðal annars á því hvernig þessar tvær ólíku atburðarásir mætast og varpa nýju ljósi hvor á aðra.

Titillinn varð til óvenju snemma

Yrsa sagði titla bóka sinna yfirleitt verða til þegar handritið væri nær tilbúið. Að þessu sinni hefði það hins vegar gerst mun fyrr í ritferlinu og bókin fengið heitið Mara, strax á fyrstu stigum vinnunnar.

Hún sagði útgáfu bókarinnar fyrirhugaða í nóvember og kvaðst hlakka til að lesendur fengju loks að kynnast sögunni.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila