
Ný sóttvarnalög sem samþykkt voru á Alþingi á dögunum og taka eiga gildi 1. september 2026 fela í sér víðtækar heimildir fyrir stjórnvöld til að grípa inn í líf almennings vegna farsótta og annarra heilsufarsógna. Samkvæmt lögunum sem birt voru á vef Alþingis í dag, getur ráðherra sett reglur um skyldubundnar bólusetningar, lokun landsvæða, sett á samkomubönn og stöðvað atvinnurekstur. Í lögunum er einnig kveðið á um mögulega frelsissviptingu einstaklinga, einangrun með aðkomu lögreglu og refsingu allt að eins árs fangelsi fyrir brot gegn sóttvarnaráðstöfunum.
Ráðherra fær heimild til skyldubólusetningar
Í 28. grein laganna er ráðherra veitt heimild til að setja reglugerðir um „ónæmisaðgerðir“ þegar um er að ræða samfélagslega hættulegan sjúkdóm. Í skilgreiningarákvæði laganna kemur fram að með ónæmisaðgerðum sé meðal annars átt við bólusetningar.
Þá segir í 41. grein að brot gegn reglum sem settar eru samkvæmt 27. og 28. grein geti varðað sektum eða fangelsi allt að einu ári.
Lögin mæla ekki sérstaklega fyrir um líkamlega nauðungarbólusetningu, en þau veita ráðherra heimild til að setja reglur sem gera bólusetningar skyldubundnar og leggja refsingu við brotum gegn þeim.
Heimilt að svipta fólk frelsi í allt að 15 daga
Samkvæmt lögunum getur sóttvarnalæknir tekið stjórnvaldsákvörðun um sóttkví eða einangrun einstaklinga ef grunur leikur á smiti eða útbreiðsluhættu.
Ef einstaklingur neitar að fylgja fyrirmælum getur sóttvarnalæknir ákveðið að viðkomandi verði vistaður í sóttvarnahúsi eða á sjúkrahúsi. Lögreglu er heimilt að framfylgja slíkum ákvörðunum með líkamlegri valdbeitingu ef nauðsyn krefur.
Einnig er heimilt að skylda einstakling til að bera búnað sem gerir stjórnvöldum kleift að fylgjast með ferðum hans og afhenda vegabréf sitt ef hætta þykir á að hann yfirgefi landið.
Frelsissvipting samkvæmt lögunum má vara í allt að 15 sólarhringa í senn.
Heimild til lokunar svæða og samkomubanna
Ef sjúkdómur er skilgreindur sem samfélagslega hættulegur getur ráðherra samkvæmt lögunum sett reglugerðir um:
- lokun sveitarfélaga eða landshluta,
- lokun skóla,
- samkomubönn,
- stöðvun atvinnurekstrar,
- notkun hlífðarbúnaðar,
- skimun og einangrun.
Slíkar reglugerðir geta gilt í allt að fjórar vikur í senn.
Fangelsi fyrir brot gegn sóttvarnaráðstöfunum
Í nýju lögunum er einnig kveðið á um refsingu fyrir brot gegn sóttvarnaráðstöfunum og fyrirmælum stjórnvalda.
Brot gegn reglum um sóttkví, einangrun, samkomubönn eða öðrum ráðstöfunum sem settar eru samkvæmt lögunum geta varðað sektum eða fangelsi allt að einu ári.
Lögin má skoða í heild hér að neðan.
