
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, segir ummæli kanslara Þýskalands um stöðu Evrópska efnahagskerfisins staðfesta þá greiningu sem hann setti fram í nýlegu viðtali í hlaðvarpinu Chess After Dark um þróun Evrópusambandsins og áhrif aukins regluverks innan sambandsins.
Í færslu sem Ólafur birti á samfélagsmiðlum vitnaði hann í orð kanslarans þar sem hann sagði að bæði Þýskaland og Evrópa hefðu glatað miklum vaxtarmöguleikum á undanförnum árum með því að draga lappirnar í umbótum, skerða frumkvöðlafrelsi og auka skrifræði um of.
Þar sagði jafnframt að Evrópa hefði þróast úr því að stefna að því að verða samkeppnishæfasta efnahagssvæði heims yfir í að verða „heimsmeistari í ofregluvæðingu“ og að þeirri þróun yrði að linna.
Vakti athygli á stöðu Evrópusambandsins
Í færslunni segir Ólafur að þeir sem enn efist um sögulega greiningu hans á efnahagslíkani Evrópusambandsins ættu að hlusta á kanslara Þýskalands. Með því vísar hann til viðtals sem hann veitti í Chess After Dark þar sem hann fjallaði ítarlega um stöðu Evrópusambandsins, samkeppnishæfni Evrópu og áhrif regluverks innan sambandsins.
Gagnrýndi hugmyndafræðilega umræðu um ESB
Í viðtalinu gagnrýndi Ólafur meðal annars það sem hann kallaði hugmyndafræðilega umræðu um Evrópusambandið hér á landi og sagði mikilvægt að ræða stöðu sambandsins út frá raunverulegri þróun efnahags- og stjórnmála í Evrópu.
Hann vísaði þar meðal annars til Draghi-skýrslunnar um stöðu evrópsks efnahagslífs og sagði að þar kæmu fram alvarlegar viðvaranir um minnkandi samkeppnishæfni Evrópu gagnvart Bandaríkjunum og Asíu.
